Lyon 4 - 0 Paris FC
1-0 Wendi Renard('56, víti)
2-0 Saki Kumagai('69)
3-0 Eugenie Le Sommer('75, víti)
4-0 Saki Kumagai('86)
1-0 Wendi Renard('56, víti)
2-0 Saki Kumagai('69)
3-0 Eugenie Le Sommer('75, víti)
4-0 Saki Kumagai('86)
Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur í kvennaliði Lyon byrja deildarkeppnina í Frakklandi af miklum krafti en lokaleikur fyrstu umferðar fór fram í dag.
Paris FC var andstæðingur Lyon en það síðarnefnda fagnaði nýlega sigri í Meistaradeild Evrópu.
Lyon er besta lið Frakklands og var Sara á sínum stað í byrjunarliði dagsins. Hún samdi nýlega við félagið eftir dvöl hjá Wolfsburg.
Sara spilaði 81. mínútu í leik dagsins en Lyon var ekki í miklum vandræðum með Paris og fagnaði 4-0 sigri.
Lyon hefur unnið frönsku úrvalsdeildina 14 sinnum í röð og hefur titil að verja.
Athugasemdir