Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 06. september 2020 17:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Svíþjóð: Glódís skoraði fyrir toppliðið í Íslendingaslag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það voru tveir leikir í úrvalsdeild kvenna í Svíþjóð í dag þar sem Íslendingalið Rosengård er á toppnum.

Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn fyrir Rosengård og skoraði síðasta markið í 3-0 sigri á Djurgården í Íslendingaslag. Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn í vörn Djurgården en markvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir er einnig á mála hjá félaginu. Hún er að koma til baka eftir barneignir og var ekki í hóp í dag.

Rosengård skoraði öll þrjú mörk sín í síðari hálfleiknum en mark Glódísar kom á 84. mínútu. Rosengård er á toppi deildarinnar með þriggja stiga forystu á Gautaborg.

Í hinum leik dagsins vann Kristinstad dramatískan útisigur á Piteå þar sem sigurmarkið kom á 91. mínútu. Það var hin finnska Eveliina Summanen sem skoraði sigurmarkið. Svava Rós Guðmundsdóttir spilaði 92 mínútur fyrir Kristianstad og Elísabet Gunnarsdóttir er þjálfari liðsins. Sif Atladóttir er einnig á mála hjá félaginu en hún á von á barni.

Kristianstad hefur átt mjög gott tímabil til þessa og er í þriðja sæti með 27 stig eftir 14 leiki. Ef liðið heldur áfram að ná í góð úrslit þá er aldrei að vita nema liðið blandi sér í titilbaráttuna.
Athugasemdir
banner
banner
banner