Grindavík var að senda frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kemur að Srdjan Tufegdzic, Túfa, sé hættur sem þjálfari Grindavíkur.
Túfa stýrði Grindavík í eitt tímabil, en liðið féll úr Pepsi Max-deildinni undir hans stjórn.
„Grindavík og Srdjan Tufegdzic (Túfa) þjálfari karlaliðs meistaraflokks Grindavíkur hafa gert með sér samkomulag um að Túfa muni ekki halda áfram þjálfun liðsins á komandi tímabili. Grindavík þakkar Túfa fyrir hans störf og óskar honum og hans fjölskyldu velfarnaðar," segir í tilkynningu Grindavíkur.
Túfa hefur verið orðaður við endurkomu til Akureyrar. Hann er fyrrum þjálfari og leikmaður KA, en sögusagnir segja að hann sé á blaði hjá Þórsurum.
Athugasemdir