Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 06. október 2022 17:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu markið: Man Utd marki undir í hálfleik í Kýpur
Tyrell Malacia gerði slæm mistök
Tyrell Malacia gerði slæm mistök
Mynd: EPA

Manchester United er í heimsókn gegn kýpverskaliðinu Omonia í Evrópudeildinni en þegar skammt er til loka fyrri hálfleiks er staðan 1-0 fyrir heimamenn.


United átti hornspyrnu, Tyrell Malacia fékk boltann á miðjum vellinum en missti hann og þrír leikmenn Omonia brunuðu fram í skyndisókn.

Það endaði með því að Íraninn Karim Ansarifard fékk boltann og setti boltann upp í þaknetið.

Það var spurning með rangstöðu en Íraninn var samsíða Christian Eriksen.

Eins og staðan er núna er Manchester United á botni riðilsins en Omonia fer upp fyrir enska liðið með sigri.

Markið má sjá hér.


Athugasemdir
banner
banner
banner