Fotbolti.net
06.10.26 - 14:39
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Arnar segir liðið þurfa að aðlagast því sem leikurinn býður upp á

Elíza Gígja skrifar frá Tallinn

Arnar Gunnlaugsson

Arnar Gunnlaugsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip

Íslenska landsliðið mætir því eistneska í kvöld og með því endar þessi maraþon landsleikjagluggi. Liðin mættust fyrr í þessum glugga, heima á Laugardalsvelli, í leik sem endaði 1-1.

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari liðsins, er tíðrætt um tölfræði og að oft sé ekki allt eins og það sýnist í fyrstu. Arnar segir nóg af möguleikum vera til staðar gegn eistneska liðinu, íslenska liðið þurfi bara að taka leiknum eins og hann spilast og nýta þau tækifæri sem gefast. 

„Ég var mjög sáttur við færasköpun og hvað við áttum, þegar við vorum í gírnum, tiltölulega auðvelt með að skapa færi (í leiknum gegn Búlgaríu). En svo ertu kannski ósáttari við að við hefðum getað haldið betur í boltann og hvílt okkur betur þannig, já klárlega.“

„En ég held að leikurinn í dag sé bara orðinn þannig að þú þarft að vera góður við allar aðstæður og við hvetjum strákana til þess að vega og meta aðstæður hverju sinni í hvaða leik sem er og taka því sem leikurinn býður upp á. Leikurinn á móti Búlgörum bauð upp á þennan dans og leikurinn á móti Lúxemborg bauð upp á svona og svo leikurinn á móti Eistlandi, bauð upp á einhvern ákveðinn leik sem við einfaldlega bara tókum ekki.“

„Við vorum klaufar í að nýta ekki stór svæði sem að Eistar buðu upp á. Þannig að þetta er alltaf leikmannanna, að við látum leikmennina fá nægilega mörg vopn til þess að þeir geti tekið meðvitaða og sterka ákvörðun inná velli til þess að ná fram góðum úrslitum.

Það er hræðileg tilfinning að vera á hliðarlínunni í fótboltaleik og það heyrir enginn í þjálfaranum og það líða langar 45 mínútur þangað til að næsta skipun getur komið inn í hálfleik þannig að þeim mun fleiri vopn sem leikmennirnir hafa að þá hafa þeir það vægi til að taka þær ákvarðanir til að leikurinn muni enda vel.“

Frá viðureign liðanna á Laugardalsvelli.

Frá viðureign liðanna á Laugardalsvelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Ísland er á toppi riðilsins með sjö stig.

Ísland er á toppi riðilsins með sjö stig.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.