Levski vann í dag sinn þriðja leik í röð í efstu deild í Búlgaríu þegar Etar mætti í heimsókn. Hólmar Örn Eyjólfsson er á mála hjá Levski og lék sjöunda leikinn í röð í byrjunarliðinu.
Hólmar lét ekki nægja að spila leikinn en varnarmaðurinn skoraði í öðrum leiknum í röð með skalla. Hólmar skoraði fyrsta mark leiksins og kom það á 24. mínútu leiksins. Levski skoraði tvö mörk í seinni hálfleik og sigraði leikinn 3-0.

Myndband af markinu má sjá hér að neðan en Íslendingavaktin birti það á síðu sinni fyrr í dag. Levski er í 2. sæti deildarinnar, fjórum stigum frá Ludogorets. Markið var þriðja mark Hólmars í síðustu fimm leikjum.
Þriðja skallamark Hólmars á tímabilinu. pic.twitter.com/B3wx6rExuJ
— Íslendingavaktin (@Islendingavakt) November 6, 2019
Athugasemdir