Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 06. nóvember 2019 07:30
Magnús Már Einarsson
Sigurður Elíasson tekur við GG (Staðfest)
Mynd: GG
Sigurður Elíasson er nýr þjálfari knattspyrnufélagsins GG í Grindavík í 4. deildinni.

„Við bindum miklar vonir við þennan unga og efnilega þjálfara," segir í yfirlýsingu frá GG.

Siggi eins og hann oft kallaður er uppalinn í Garðinum og spilaði hann með Víði.

Eftir að hann hætti að spila hefur hann undanfarin 4 ár verið aðstoðarþjálfari hjá Víði Garði og síðar hjá Þrótti Vogum.

GG vann sinn riðil og fór í úrslitakeppnina í 4. deildinni síðastliðið sumar en tapaði í 8-liða úrslitum gegn Elliða.
Athugasemdir
banner
banner
banner