06.11.21 - 13:29
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stuðningsfólk City syngur og trallar - „Ole er við stýrið"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það var baulað á leikmenn Manchester United er þeir gengu til búningsklefa eftir fyrri hálfleikinn gegn Manchester City í leik sem er núna í gangi í ensku úrvalsdeildinni.
Man City hefur verið með algjöra yfirburði og er staðan 0-2 í hálfleik. Munurinn væri mun meiri ef ekki væri fyrir David de Gea, sem gerði þó mistök eins og aðrir í öðru markinu rétt fyrir leikhlé.
United hefur lagt rútunni í fyrri hálfleiknum og þetta hefur verið afskaplega auðvelt fyrir City.
Bastian Schweinsteiger, fyrrum leikmaður Man Utd, gagnrýnir leikstíl liðsins á samfélagsmiðlum. Hann segir liðið alltof passívt. „Koma svo United, þið eruð að spila á Old Trafford!" skrifar Schweinsteiger.
Á meðan stuðningsfólk Man Utd baulaði, þá var stuðningsfólk Man City himinlifandi. Það söng: „Ole er við stýrið (e. Ole's at the wheel)."
Það segir rosalega mikið að stuðningsmenn Liverpool og Man City vilja að Ole Gunnar Solskjær haldi áfram sem stjóri Man Utd.

Passive @ManUtd vs active @ManCity.
— Bastian Schweinsteiger (@BSchweinsteiger) November 6, 2021
The idea of football couldn’t be more different. I wish United would be more active and not chasing the ball non stop - losing their energy. Take away the ball of Pep‘s team 😉
Come on Utd, you’re playing at #OldTrafford! #MUNMCI