Fotbolti.net
06.11.23 - 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Emma Hayes verður sú launahæsta í heiminum

Emma Hayes.

Emma Hayes.

Canon

Mynd: EPA

Hertz
Eins og fram kom núna um helgina þá er Emma Hayes að hætta með kvennalið Chelsea eftir yfirstandandi tímabil.
Hayes hefur stýrt Chelsea í tólf ár og unnið fimmtán titla á þeim tíma, þar á meðal deildina sex sinnum. Hún hefur náð mögnuðum árangri og gert Chelsea að besta liði Englands.

Hún er talin með bestu þjálfurum kvennafótboltans og var hún meðal annars valin besti þjálfarinn af FIFA fyrir tveimur árum.

Breskir fjölmiðlar segja frá því að Hayes sé nálægt því að taka við bandaríska landsliðinu.

HIn 47 ára gamla Hayes er við það að skrifa undir metsamning við bandaríska knattspyrnusambandið en hún verður launahæsti þjálfari heims í kvennaboltanum. Hún kemur til með að fá sömu laun og Greg Berhalter, þjálfari bandaríska karlalandsliðsins.

Bandaríkin voru lengi besta landslið heims en liðið olli miklum vonbrigðum á HM síðasta sumar. Bandaríska liðið datt þá úr leik í 16-liða úrslitunum.

Hayes kemur þá til með að taka við bandaríska liðinu í maí.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.