Fotbolti.net
06.12.19 - 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sky: Everton vill fá stjóra Shanghai SIPG

Sky: Everton vill fá stjóra Shanghai SIPG
Canon

Mynd: Getty Images

Everton rak í gærkvöldi Marco Silva úr stjórastöðunni hjá félaginu. Silva hafði stært félaginu frá sumrinu 2018, tæpa eina og hálfa leiktíð.

Everton situr í 18. sæti úrvalsdeildarinnar og frammistaða liðsins verið langt fyrir neðan væntingar. Dropinn sem fyllti mælin var sannfærandi tap gegn Liverpool, nágrönnunum, á miðvikudagskvöld.
Everton leitar að arftaka Silva og hefur nafn David Moyes verið í umræðunni. Moyes var stjóri félagsins á árunum 2002-2013.

Samkvæmt heimildum Sky Sports þá er Everton á eftir Vitor Pereira, 51 árs gömlum portúgölskum þjálfara sem þjálfar Shanghai SIPG í Kína.

Vitor hefur verið þjálfari frá árinu 2002. Hann hefur þjálfað hjá Porto (2010-2013, fyrst sem aðstoðarþjálfari), Al-Ahli (2013-14), Olympiakos (2015), Fenerbahce (2015-16), 1860 Munchen (2017) og frá því árið 2018 hefur hann verið þjálfari Shanghai SIPG.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.