Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   sun 06. desember 2020 23:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Hvernig kemst hann upp með þetta í hverjum leik?"
Harry Kane og félagi hans í sóknarleik Tottenham, Son Heung-min.
Harry Kane og félagi hans í sóknarleik Tottenham, Son Heung-min.
Mynd: Getty Images
Fjölmiðlamaðurinn Chris Wheatley, sem fjallar um Arsenal fyrir football.london, gagnrýndi Harry Kane, sóknarmenn Tottenham, á Twitter í kvöld.

Tottenham hafði betur gegn Arsenal þegar liðin áttust við í nágrannaslag í kvöld. Leikurinn endaði 2-0 fyrir Spurs.

Það var ekki hægt að gagnrýna Kane fyrir frammistöðu hans í leiknum þar sem hann var mjög góður. Wheatley gagnrýndi enska landsliðsfyrirliðann fyrir að fara inn í Gabriel, varnarmann Arsenal, og beygja sig.

„Kane hefði getað meitt Gabriel alvarlega. Hvernig kemst hann upp með þetta í hverjum leik? Þetta er svo hættulegt," skrifaði Wheatley og benti á nokkur önnur dæmi þar sem Kane hefur gert álíka.

Hér að neðan má sjá færslur hans.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner