Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 06. desember 2021 21:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Everton með sigur í ótrúlegum leik
Mynd: EPA
Everton 2 - 1 Arsenal
0-1 Martin Odegaard ('45 )
1-1 Richarlison ('79 )
2-1 Demarai Gray ('90 )

Everton lagði Arsenal í ótrúlegum loka leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Richarlison var allt í öllu hjá Everton en hann skoraði undir lok fyrri hálfleiks en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Þegar tvær mínútur voru komnar framyfir venjulegan leiktíma í fyrri hálfleik kom Martin Ödegaard Arsenal yfir.

Eftir tæplega klukkutíma leik var Richarlison aftur á ferðinni og skoraði en aftur var markið dæmt ógilt, stóra táin var fyrir innan.

Það var hinsvegar á 80. mínútu sem Richarlison kom boltanum yfir línuna í þriðja sinn og í þetta sinn fékk markið aðstanda.

Það voru komnar tvær mínútur framyfir venjulegan leiktíma er Demarai Gray fór illa með tvo varnarmenn Arsenal og skaut boltanum framhjá Ramsdale í marki Arsenal og í stöngina og inn.

Aubameyang komst í gott færi á lokasekúndum leiksins en setti boltann framhjá markinu. 2-1 sigur Everton staðreynd.
Athugasemdir
banner
banner