Danny Drinkwater, miðjumaður Chelsea, hefur gengið til liðs við Aston Villa á láni út tímabilið.
Drinkwater var á láni hjá Burnley fyrri hluta tímabils en hann fékk lítið að spila þar og nú hefur hann skipt um félag.
Aston Villa mun greiða stærstan hluta af launum Drinkwater á meðan á lánssamningum stendur.
Hinn 29 ára gamli Drinkwater gæti spilað sinn fyrsta leik með Aston Villa gegn Manchester City á sunnudag.

Aston Villa mætir Leicester í undanúrslitum enska deildabikarsins á morgun en Drinkwater má ekki spila gegn sínum gömlu félögum í þeim leik þar sem hann lék í deildabikarnum fyrr á tímabilinu með Burnley.
Athugasemdir