Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 07. janúar 2023 22:40
Ívan Guðjón Baldursson
Æfingaleikur: Bjarni Páll skoraði í sigri Aftureldingar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leiknir R. 1 - 4 Afturelding
Mörk Aftureldingar:
Hrafn Guðmundsson
Sævar Atli Hugason
Gunnar Bergmann Sigmarsson
Bjarni Páll Linnet Runólfsson


Afturelding lagði Leikni R. að velli í æfingaleik í Breiðholti í dag og skoraði Bjarni Páll Linnet Runólfsson fyrir Aftureldingu.

Bjarni Páll gæti því orðið nýr leikmaður Mosfellinga fyrir komandi tímabil en hann lék 16 leiki með HK í Lengjudeildinni í fyrra.

Hrafn Guðmundsson, fæddur 2006, Sævar Atli Hugason og Gunnar Bergmann Sigmarsson komust einnig á blað í sigri Aftureldingar.

Bjarni er 26 ára gamall miðjumaður sem á leiki að baki fyrir bæði Víking og Þrótt R.


Athugasemdir
banner
banner
banner