Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 07. janúar 2023 23:20
Ívan Guðjón Baldursson
Þungavigtarbikarinn: Blikar rúlluðu yfir Garðbæinga
Mynd: Breiðablik

Stjarnan 1 - 5 Breiðablik
Mark Stjörnunnar:
Helgi Fróði Ingason
Mörk Blika:
Ágúst Eðvald Hlynsson
Tómas Orri Róbertsson
Stefán Ingi Sigurðarson
Ágúst Orri Þorsteinsson
Atli Þór Gunnarsson


Stjarnan og Breiðablik áttust við í fyrsta leik Þungavigtarbikarsins sem hófst fyrr í dag. Þungavigtarbikarinn er nýtt æfingamót sem haldið er á undirbúningstímabilinu. Þar mæta bestu lið landsins til leiks.

Blikar rúlluðu yfir Stjörnumenn í dag og skiptu mörkunum fimm bróðurlega á milli sín. Ágúst Eðvald Hlynsson, Tómas Orri Róbertsson, Stefán Ingi Sigurðarson, Ágúst Orri Þorsteinsson og Atli Þór Gunnarsson gerðu mörk Blika í leiknum.

Höskuldur Gunnlaugsson, Damir Muminovic og Dagur Dan Þórhallsson voru ekki með í liði Blika vegna landsliðsverkefnis og þá voru Jason Daði Svanþórsson, Pétur Theódór Árnason, Oliver Sigurjónsson, Viktor Elmar Gautason og Eyþór Aron Wöhler fjarverandi vegna meiðsla.

Breiðablik og Stjarnan eru með HK í riðli 1 á meðan FH, ÍBV og Keflavík eru í riðli 2.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner