Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 07. febrúar 2021 16:10
Victor Pálsson
Mourinho: Kane mun slá öll metin
Mynd: Getty Images
Harry Kane mun slá öll möguleg met hjá Tottenham að sögn Jose Mourinho sem er í dag stjóri liðsins.

Kane sneri aftur í lið Tottenham í dag sem spilaði við West Brom á heimavelli og hafði betur, 2-0.

Tottenham hafði tapað síðustu þremur leikjum sínum í röð fyrir leik dagsins og eru þrjú stigin afar mikilvæg.

„Í fyrri hálfleik vorum við með algjöra stjórn og hefðum getað gert út um leikinn," sagði Mourinho við BT Sport.

„Við fórum inn í hálfleikinn með mikið sjálfstraust og vorum jákvæðir. Ég ræddi aðeins við þá í eina mínútu. Við vorum á réttri leið."

„Harry Kane er sérstakur leikmaður í sögu félagsins. Hann mun slá öll met sem eru í boði. Einstaklingsframtakið var mjög gott í dag."

„Í lok tímabils þá kemur í ljós hvar við eigum skilið að enda í töflunni."
Athugasemdir
banner
banner
banner