Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 07. febrúar 2023 23:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sharp feginn að vera laus við Wrexham - Ósáttur með hegðun leikmanna
Billy Sharp
Billy Sharp
Mynd: EPA

Hinn 37 ára gamli Billy Sharp var hetja Sheffield þegar liðið komst áfram í enska bikarnum í kvöld eftir sigur á Wrexham.


Sharp kom liðinu í 2-1 með marki í uppbótartíma en Sander Berge gulltryggði sigurinn þegar hann skoraði þriðja mark liðsins stuttu síðar.

Þetta var endurtekinn leikur eftir jafntefli í fyrri leiknum en Sharp var ekki ánægður með leikmenn Wrexham.

„Ég er feginn að hafa unnið þá, þeir eru að gera vel í deildinni sinni og við í okkar en ég var ekki ánægður með nokkra leikmenn hjá þeim. Hvernig þeir höguðu sér fyrir leikinn að tala um Tottenham, þeir voru ekki einu sinni búnir að vinna okkur," sagði Sharp eftir leikinn í kvöld en Sheffield mætir Tottenham í næstu umferð.

„Þeir héldu að við myndum slaka á þegar þeir komu til baka og ég held að dómarinn hafi hjálpað þeim líka, ég held að ég hafi ekki fengið eina aukaspyrnu í kvöld."


Athugasemdir
banner
banner
banner