Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 07. mars 2023 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Akil DeFreitas í KF (Staðfest)
Mynd: KF
Akil DeFreitas er genginn til liðs við KF frá Reyni Sandgerði en þetta kom fram í tilkynningu KF í gær.

DeFreitas, sem er fæddur árið 1986, er reynslumikill leikmaður sem kom fyrst til landsins árið 2017 er hann samdi við Sindra.

Hann hefur einnig spilað fyrir Hvöt, Vestra, Völsung og Kormák/Hvöt en hann á samtals 96 leiki í deild- og bikar og hefur skorað 29 mörk.

Sóknarmaðurinn öflugi hefur nú gert samning við KF um að spila með liðinu á komandi tímabili.

KF átti ágætis tímabil í 2. deildinni á síðasta ári en liðið hafnaði í 8. sæti með 26 stig.
Athugasemdir
banner
banner