Fotbolti.net
07.03.24 - 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Berjast um að semja við Klopp fyrir sumarið

Jurgen Klopp.

Jurgen Klopp.

Canon

Mynd: Getty Images

Jurgen Klopp er eftirsóttur fyrir sumarið, en ekki í þjálfarastörf. Barist er um að semja við Klopp um að taka að sér hlutverk sérfræðing fyrir Evrópumótið í sumar.
Klopp er að hætta með Liverpool og ætlar hann að taka sér frí frá þjálfun.

En ekki er alveg útilokað taka að sér hlutverk séfræðings í kringum Evrópumótið sem haldið verður í Þýskalandi.

Bresku sjónvarpsstöðvarnar BBC og ITV sýna báðar frá mótinu en þær berjast nú um að landa samningi við Klopp.

En samkvæmt Daily Mail er þó líklegast að Klopp muni hafna báðum tilboðum og fylgjast með EM sem áhorfandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.