Fotbolti.net
07.03.24 - 21:41
Ívan Guðjón Baldursson

Þórhallur frá Vogum í Laugardalinn (Staðfest)

Þórhallur frá Vogum í Laugardalinn (Staðfest)
Canon

Mynd: Aðsend Marteinn Ægisson

Lengjudeildin
Þróttur R. er búinn að tryggja sér nýjan markvörð sem kemur til liðsins úr röðum Þróttar V. og er búinn að spila tvo leiki fyrir félagið í Lengjubikarnum.
Sá heitir Þórhallur Ísak Guðmundsson og er fæddur 1999. Hann gerði flotta hluti á milli stanga ÍH og Þróttar V. í fyrra og reynir nú fyrir sér með Þrótti R. í Lengjudeildinni.

Þróttur bjargaði sér frá falli úr Lengjudeildinni í fyrra þar sem liðið fékk 46 mörk á sig í 22 leikjum. Hann mun berjast við Svein Óla Guðnason um markmannsstöðuna hjá Þrótti.

Þórhallur færir sig því á milli Þróttarafélaga, úr Vogum og yfir í Laugardalinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.