Landsdómarahópur KSÍ mun í dag halda vinnufund, fjarfund, til undirbúnings fyrir komandi tímabil.
Í dag mun Gylfi Þór Orrason fara yfir helstu breytingar á knattspyrnulögunum.
Á þriðjudaginn í næstu viku verður svo farið yfir ýmsar myndbandsklippur úr leikjum.
Undirbúningsfundir sem þessir eru mikilvægur liður í undirbúningi dómara fyrir hvert keppnistímabil, en staða mála gagnvart COVID-19 hefur gert það að verkum að breyta hefur þurft forminu á fundunum, sem eru nú í öllum tilfellum fjarfundir.
Athugasemdir