Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 07. maí 2022 21:17
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Liverpool og Tottenham: Davies og Romero frábærir
Cristian Romero og Luis Díaz berjast um boltann
Cristian Romero og Luis Díaz berjast um boltann
Mynd: EPA
Argentínski miðvörðurinn Cristian Romero var maður leiksins í 1-1 jafntefli Tottenham gegn Liverpool á Anfield í kvöld en hann og Ben Davies áttu stórkostlegan leik í vörn liðsins.

Tottenham-liðið varðist vel sem heild og átti Liverpool erfitt með að brjóta liðið á bak aftur.

Son Heung-Min kom Tottenham yfir í leiknum áður en Luis Díaz skoraði með hjálp Rodrigo Bentancur rúmum fimmtán mínútum fyrir leikslok en skot hans fór af úrúgvæska miðjumanninum og í vinstra hornið.

Davies og Romero voru bestir í liði Tottenham og fá 8 en Díaz fær einnig 8 fyrir frammistöðu sína.

Liverpool: Alisson (6), Alexander-Arnold (6), Konate (6), Van Dijk (6), Robertson (6), Fabinho (6), Henderson (7), Thiago (6), Salah (5), Mane (6), Diaz (8).
Varamenn: Tsimikas (6), Jota (6).

Tottenham: Lloris (6), Royal (7), Romero (8), Dier (7), Davies (8), Sessegnon (7), Hojbjerg (6), Bentancur (6), Kulusevski (7), Kane (7), Son (7).
Varamenn: Sanchez (6).
Athugasemdir
banner