Aston Villa var tveimur stigum frá fallsæti þegar Steven Gerrard tók við sem stjóri félagsins af Dean Smith í nóvember.
Gerrard fór vel af stað en liðið hefur aðeins unnið einn leik af síðustu sex en það var gegn lærisveinum Smith í Norwich í síðustu umferð. Villa mætir Burnley kl 14 í dag.
Gerrard er ekki sáttur með tímabilið hjá félaginu en átta lið hafa náð í fleiri stig en Villa síðan hann tók við.
„Við verðum ekki ánægðir eða fögnum einhverju á þessari leiktíð því liðið hefur ekki náð því besta fram."
Athugasemdir