Fotbolti.net
07.05.22 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Már framlengir við Fram

Már framlengir við Fram
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Már Ægisson hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélagið sitt Fram. Frá þessu er greint á samfélgasmiðlum Fram. Samningurinn gildir út sumarið 2023.

Már er 22 ára gamall og hefur allan sinn feril leikið með Fram fyrir utan sumarið 2017 þegar hann lék með venslafélaginu Úlfununum.

Már kom við sögu í fimmtán leikjum á síðasta tímabili þegar Fram fór ósigrað upp úr Lengjudeildinni.

Hann hefur spilað fyrstu 270 mínúturnar í Bestu deildinni í sumar og skoraði fyrsta mark Fram í sumar - gegn KR.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.