Fotbolti.net
07.06.13 - 20:30
Brynjar Ingi Erluson

Arrasate tekur við Real Sociedad (Staðfest)

Arrasate tekur við Real Sociedad (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Real Sociedad hefur ráðið Jagoba Arrasate sem þjálfara liðsins, en félagið staðfesti þetta í dag.
Philippe Montanier stýrði liðinu í Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð, en ákvað hinsvegar ekki að fara með liðið inn í keppnina í haust.

Hann ákvað að semja við Rennes í Frakklandi og skrifaði hann undir samning þess efnis þann 21. maí.

Jagoba Arrasate hefur því verið ráðinn þjálfari Sociedad. Laurent Blanc hafði verið orðaður við stöðuna, en nú er hinsvegar ljóst að Arrasate tekur við liðinu.

Arrasate, sem er 35 ára gamall, var í þjálfaraliðið Sociedad á síðustu leiktíð og lærði því mikið af Montanier, en hann verður kynntur sem þjálfari liðsins á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.