Fotbolti.net
07.06.17 - 11:00
Mist Rúnarsdóttir

Dagný: Hitti geggjaðan lækni

Auglýsing
Dagný gat tekið fullan þátt í æfingu gærdagsins

Dagný gat tekið fullan þátt í æfingu gærdagsins

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Dagný Brynjarsdóttir er komin aftur í íslenska landsliðshópinn en hún hefur misst af síðustu verkefnum vegna meiðsla. Fótbolti.net náði tali af landsliðskonunni öflugu sem er í góðu bataferli.
„Ég missti af síðustu verkefnum þannig að það er gaman að hitta hópinn aftur. Það er góð stemmning í hópnum og alltaf gaman að vera í kringum landsliðið þannig að maður saknar hvers verkefnis sem maður missir af,“ sagði Dagný sem er hæstánægð með að snúa aftur í landsliðshópinn.

En hvernig var fyrir Dagnýju að vera utan hóps og fylgjast með liðinu úr fjarlægð?

„Það var frekar skrítið. Ég hef ekki misst af verkefni í mjög langan tíma og það var erfitt að fylgjast með öllu. Kannski sérstaklega að vera einhvers staðar lengst í burtu og sjá þær tapa. Vitandi að maður gat ekki hjálpað þeim eða gert neitt. Það var erfitt en ég er komin aftur og það er gaman.“

Dagný hefur ekki leikið með landsliðinu síðan gegn Japan 3. mars en það reyndist henni erfitt að fá rétta greiningu á meiðslum sínum.

„Ég var greind vitlaust í tvígang. Svo þegar ég var loksins greind rétt þurfti að finna út hvernig væri hægt að flýta batanum. Þetta er búið að vera erfitt, sérstaklega andlega. Ég var komin af stað en fékk bakslag og ég var jafnvel farin að missa trúna á að ég yrði orðin góð á þessu tímabili. En svo fundum við eitthvað sem virkaði. Ég fór í sprautumeðferð þarna úti og hitti geggjaðan lækni þannig að núna virðist þetta vera á réttri. En auðvitað er ég alltaf hrædd um að það geti komið bakslag,“ segir Dagný sem vonar það besta og er bjartsýn á að ná góðum bara fyrir Evrópumótið.

Þá er jafnvel ekki úr myndinni að hún geti komið við sögu í leiknum á morgun.

„Ég held að það verði bara að koma í ljós. Við reynum að taka bara einn dag í einu og svo er þetta undir staffinu komið og þeim úti líka. Það verður að fara eftir þessu plani.“

Nánar er rætt við Dagnýju í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.