Halldór Árna: Erum ekki að mikla það upp fyrir okkur að lið séu á toppnum
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Halldór Árnason var svekktur að ná ekki að sigra Fjölnismenn upp úr því sem komið var.
Leikurinn endaði 0-0 og fór fram á Vivaldivellinum fyrr í kvöld.

„Við erum ekkert brjálæðislega sáttir með fyrri hálfleik, vorum í vandræðum með að spila í gegnum fyrstu pressu, en það gekk betur þegar leik á fyrri hálfleikinn og í seinni hálfleik fannst mér við hafa góð tök á leiknum.'' Sagði Dóri, aðspurður út í þeirra leik í dag.
„Við eigum skot í stöng, slá og þeir bjarga tvisvar á línu, auðvitað hefði ég viljað þrjú stig en við vorum ap spila á móti ótrúlega sterku liði, í rauninni bara Pepsi deildar lið að spila í Inkasso deildinni. Þannig við virðum stigið en auðvitað viljum við alltaf meira á heimavelli.'' Hélt Halldór áfram.
Grótta hefur ekki unnið leik á heimavelli þetta tímabilið, er það áhyggjuefni?
„Já og nei, heimaleikirnir okkar hafa verið skrýtnir. Við spilum okkur í færi í leikjum sem fara 2-2 gegn Þrótti og 2-3 gegn Leikni''
Grótta hefur þrisvar á tímabilinu spilað gegn liðinu í efsta sæti, Þór, Keflavík og nú Fjölni, í þessum þremur leikjum hafa þeir fengið sjö af sínum átta stigum, hentar það Gróttu betur að spila gegn toppliðunum?
„Ég veit það nú ekki, við erum ekkert að mikla það upp fyrir okkur að lið séu á toppnum''
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan, en það talar Halldór betur um leikinn, hvað gekk vel, hvað mátti betur fara, stöðuna í deildinni og næstu leiki hjá Gróttu.