fös 07. júní 2019 20:06
Ívan Guðjón Baldursson
Hazard til Real Madrid (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Real Madrid er búið að staðfesta félagaskipti Eden Hazard frá Chelsea.

Hazard hefur lengi verið orðaður við Real Madrid og hefur það alltaf verið draumur hans að spila fyrir félagið.

Kaupverðið er talið nema 100 milljónum evra, eða 89 milljónum punda, Verðið getur farið upp í 130 milljónir punda með árangurstengdum bónusgreiðslum.

Hazard, sem er 28 ára gamall, skrifar undir fimm ára samning sem gildir til 30. júní 2024.

Hazard, sem hefur verið meðal bestu leikmanna heims síðustu ár, verður kynntur sem nýr leikmaður 13. júní eftir að hann gengst undir læknisskoðun. Hann er þessa stundina upptekinn með belgíska landsliðinu, þar sem hann hefur skorað 30 mörk í 100 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner