Fotbolti.net
07.06.20 - 20:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Guardiola og Lillo ræddu oft langt fram á nótt í Mexíkó

Juanma Lillo.

Juanma Lillo.

Canon

Mynd: Getty Images

Sagan segir að Pep Guardiola muni ráða Juanma Lillo sem aðstoðarmann sinn hjá Manchester City.
City hefur verið að leita að aðstoðarstjóra eftir að Mikel Arteta hvarf á braut til að taka við Arsenal. Lillo er 54 ára og var síðast þjálfari Qingdao Huanghai í Kína.

Daily Mail fjallar um samband Guardiola og Lillo. Guardiola lék um stutt skeið undir stjórn Lillo hjá Dorados Sinaloa í Mexíkó 2006. Guardiola spilaði ekki mikið vegna meiðsla, en það var mikilvægur tími fyrir hann upp á framhaldið að gera, þjálfunina. Guardiola lærði mikið af landa sínum, Lillo, og núna virðist sem svo að leiðir þeirra liggi saman á ný.

Guardiola hafnaði því að ganga í raðir Manchester City árið 2005 til að fara til Mexíkó og spila undir stjórn Lillo, þjálfara sem hann kallar 'the maestro'. Guardiola þekkti Lillo úr spænskum fótbolta og vildi ólmur spila undir hans stjórn. Í grein Daily Mail segir að Guardiola og Lillo hafi í Mexíkó átt samræður fram á hánótt um taktík, æfingar og margt fleira.

Fjölmiðlamaðurinn Guillem Balague skrifar í bók sinni um Guardiola að Johan Cruyff og Lillo hafi mest áhrif haft á hugmyndafræði Guardiola og þróun hans sem knattspyrnustjóra. Guardiola hafi síðar meir oft leitað til Lillo og sótt þekkingu til hans.

Eftir að hann yfirgaf Mexíkó árið 2006 sneri Guardiola sér að þjálfun. Í dag hefur hann sannað sig sem einn besti knattspyrnustjóri sögunnar, en hann hefur þjálfað hjá Barcelona, Bayern München og Manchester City.

Samband Lillo og Guardiola er einstakt, Lillo lítur á Guardiola nánast sem son sinni og það verður fróðlegt að sjá samvinnu þeirra hjá Manchester City, ef Lillo verður staðfestur sem aðstoðarmaður Guardiola.
Pep Guardiola.

Pep Guardiola.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.