U21 árs landsliðið æfði í dag á Víkingsvelli en liðið er að undirbúa sig fyrir mikilvægan leik gegn Hvíta-Rússlandi í undankeppni EM.
Sá leikur fer fram annað kvöld, hefst klukkan 18:00 á Víkingsvelli og þarf íslenska liðið sigur til að eiga möguleika á því að komast í lokakeppnina.
Sá leikur fer fram annað kvöld, hefst klukkan 18:00 á Víkingsvelli og þarf íslenska liðið sigur til að eiga möguleika á því að komast í lokakeppnina.
Skýring á stöðu mála hjá U21:
Þetta þarf að gerast svo U21 komist í umspil um sæti á EM
Á æfingunni í dag mátti sjá markvörðinn Pálma Rafn Arinbjörnsson. Pálmi er samningsbundinn Wolves á Englandi. Hann er fæddur árið 2003 og er genginn upp úr U19 landsliðinu. Hann var ekki í U21 hópnum sem tilkynntur var fyrir leiki liðsins í júní.
Pálmi var einn af þremur markvörðum á æfingunni en fyrir í hópnum eru Hákon Rafn Valdimarsson og Adam Ingi Benediktsson.
Athugasemdir