Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
banner
   sun 07. júní 2026 12:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kom Leao til varnar - „Er að verja liðsfélaga"
Mynd: EPA
Roberto Martinez, landsliðsþjálfari Portúgals, hefur komið Rafael Leao til varnar eftir að hann fékk rautt spjald í 2-1 sigri liðsins gegn Síle í æfingaleik i gær.

Leao og Ivan Roman tókust á undir lok fyrri hálfleiks og fengu báðir að líta rauða spjaldið.

„Viðbrögð Leao eru eðlileg. Hann var að verja liðsfélaga og sýndi liðsanda. Hann sýndi jákvæð viðbrögð til að hjálpa liðsfélaga," sagði Martinez.

Portúgal mætir Nígeríu í síðasta æfingaleiknum fyrir HM þann 10. júní. Liðið hefur síðan leik á HM gegn Kongó þann 17. júní. Liðið mætir einnig Úsbekistan og Kólumbíu.



Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner