mið 07. júlí 2021 22:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild kvenna: KH ekki í vandræðum með KM
Mynd: KH
KH 10 - 0 KM
1-0 Hildur Björk Búadóttir
2-0 Eva Stefánsdóttir
3-0 Glódís María Gunnarsdóttir
4-0 Eva Stefánsdóttir
5-0 Birta Ósk Sigurjónsdóttir
6-0 Eva Stefánsdóttir
7-0 Birta Ósk Sigurjónsdóttir
8-0 Birta Ósk Sigurjónsdóttir
9-0 Bryndís Eiríksdóttir
10-0 Hildur Björk Búadóttir

KH vann býsna öruggan sigur gegn KM er liðin áttust við í 2. deild kvenna í dag.

KH lék á als oddi í leiknum gegn KM, en bæði þessi lið eru á sínu fyrsta tímabili í Íslandsmótinu.

Svo fór að KH vann 10-0 sigur. Eva Stefánsdóttir og Birta Ósk Sigurjónsdóttir skoruðu báðar þrennu, og þá gerði Hildur Björk Búadóttir fyrsta og síðasta markið. Glódís María Gunnarsdóttir var einnig á skotskónum.

KH er í þriðja sæti deildarinnar með 18 stig. KM situr á botni deildarinnar, án stiga.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner