Southampton er að ganga frá kaupum á miðjumanninum Joe Aribo sem hefur verið hjá Rangers undanfarin þrjú ár.
Aribo er 25 ára gamall og með 10 milljón punda söluákvæði í samningi sínum við Rangers.
Southampton er að kaupa Aribo fyrir 6 milljónir en sú upphæð mun hækka í 10 milljónir með aukagreiðslum. Rangers samþykkti þetta tilboð því Aribo á aðeins eitt ár eftir af samningnum við félagið og virðist ekki spenntur fyrir að skrifa undir nýjan.
Aribo skoraði 9 mörk og lagði 10 upp í 57 leikjum á síðustu leiktíð. Hann skoraði meðal annars í úrslitaleik Evrópudeildarinnar sem Rangers tapaði í vítaspyrnukeppni.
Southampton keypti Romeo Lavia í gær og var þegar búið að krækja í Gavin Bazunu, Mateusz Lis og Armel Bella-Kotchap í sumar.
Athugasemdir