Wilfried Zaha hefur formlega lagt fram beiðni um að vera seldur frá Crystal Palace.
Everton hefur reynt að kaupa Zaha en tilboði upp á 70 milljónir punda auk James McCarthy og Cenk Tosun var hafnað af Palace.
Everton hefur reynt að kaupa Zaha en tilboði upp á 70 milljónir punda auk James McCarthy og Cenk Tosun var hafnað af Palace.
Í þessum glugga hefur Zaha meðal annars verið orðaður við Arsenal og Napoli en Everton virðist eina félagið sem er að vinna í því núna að fá hann til sín.
Zaha er 26 ára gamall en hann hefur verið potturinn og pannan í sóknarleik Crystal Palace. Á síðasta tímabili skoraði hann tíu mörk og lagði upp önnur tíu í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir