Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 07. ágúst 2020 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Dybala líklega ekki í byrjunarliðinu gegn Lyon
Paulo Dybala
Paulo Dybala
Mynd: Getty Images
Argentínski sóknarmaðurinn Paulo Dybala mun að öllum líkindum ekki byrja gegn Lyon í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á morgun.

Dybala meiddist gegn Sampdoria fyrir ellefu dögum síðan og er ekki enn klár. Hann tók ekki fullan þátt í æfingu Juventus í gær og verður hann því líklega ekki í byrjunarliðinu gegn Lyon.

Lyon vann fyrri leikinn 1-0 og því mikilvægur leikur fyrir Juventus en Douglas Costa, Matta de Sciglio og Sami Khedira verða ekki með í leiknum.

Gonzalo Higuain er fremstur á meðan Juan Cuadrado og Cristiano Ronaldo byrja á vængjunum.

Líklegt byrjunarlið Juventus: Szczesny; Danilo, De Ligt, Bonucci, Alex Sandro; Bentancur, Pjanic, Rabiot; Cuadrado, Higuain, Ronaldo
Athugasemdir
banner
banner