Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 07. ágúst 2022 11:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Saint-Maximin gaf stuðningsmanni sínum Rolex úr
Mynd: EPA

Newcastle hóf tímabilið í ensku úrvalsdeildinni á 2-0 sigri gegn nýliðum Nottingham Forest í gær.


Allan Saint-Maximin var í byrjunarliðinu en var skipt útaf undir lok leiksins.

Það vakti athygli eftir leikinn að hann gekk til stuðningsmanna liðsins og gaf einum heppnum Rolex úr. Sá aðili hélt eðlilega bara að hann væri að koma og gefa mönnum eiginhandaráritun.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Saint-Maximin gerir þetta en hann gaf einum heppnum stuðningsmanni úr eftir sigurleik í desember á síðasta ári.


Athugasemdir
banner
banner
banner