Fotbolti.net
10.09.26 - 11:56
Kári Snorrason

Á einungis bikarinn eftir - „Tekið sinn tíma að komast á Laugardalsvöll“

Þorvaldur Örlygsson réttir Höskuldi Flugleiðahornið eftir að hann var valinn besti leikmaður mótsins árið 2024.

Þorvaldur Örlygsson réttir Höskuldi Flugleiðahornið eftir að hann var valinn besti leikmaður mótsins árið 2024.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Breiðablik mætir Aftureldingu í úrslitaleik Mjólkurbikarsins á Laugardalsvelli annað kvöld og flautar Ívar Orri Kristjánsson dómari til leiks á slaginu 19:00.
Höskuldur: Verðum að leggja fortíðina til hliðar
TENGT EFNI

Höskuldur: Verðum að leggja fortíðina til hliðar

Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, hefur verið burðarás í liði félagsins í rúman áratug og gert nánast allt sem hægt er að gera með félagsliði hérlendis.

Höskuldur hefur tvívegis lyft Bestu deildar skildinum ásamt því að hafa verið valinn besti leikmaður mótsins og farið með Breiðabliki í tvígang í lokakeppni Sambandsdeildarinnar.

Eitt sem Höskuldur á þó eftir að upplifa með uppeldisfélaginu er að leika í bikarúrslitaleik með Breiðabliki. Hann var leikmaður Halmstads í Svíþjóð þegar liðið mætti Stjörnunni í úrslitum árið 2018.

Fótbolti.net ræddi við Höskuld á blaðamannafundi fyrir úrslitaleikinn í gær og spurði hann hvort hann horfi til þess að ná bikartitlinum til að fullkomna ferilskrána með Breiðabliki.

„Að sjálfsögðu, það hefur tekið sinn tíma að komast í þenann úrslitaleik á Laugardalsvelli. Sem er til marks um að þetta er erfið keppni og ekki sjálfsagt að vera kominn í þessa stöðu.

Þetta setur í samhengi að þú færð ekki marga svona sénsa og við ætlum, ég þar með talinn, ætlum að skilja allt eftir á vellinum,“
sagði Höskuldur.

Um er að ræða fjórða bikarúrslitaleik Breiðabliks. Liðið fór fyrst í bikarúrslit 1971 og tapaði þar fyrir B-deildar liði Víkings og er það eina skiptið sem lið úr næst efstu deild hefur lyft bikarmeistaratitlinum.

Á 21. öldinni hefur Breiðablik farið í tvo bikarúrslitaleiki, 2009 og 2018. Liðið vann Fram í vítaspyrnukeppni 2009 en tapaði gegn Stjörnunni í vítaspyrnukeppni árið 2018.
Frá því að Blikar unnu Bestu deildina 2022.

Frá því að Blikar unnu Bestu deildina 2022.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásamt Aroni Elí, fyrirliða Aftureldingar.

Ásamt Aroni Elí, fyrirliða Aftureldingar.

Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.