10.09.26 - 09:09
Elvar Geir Magnússon
Breiðablik tapaði í úrslitum í eina skiptið sem B-deildarlið hefur unnið bikarinn

Umfjöllin Vísis um það þegar Víkingur varð bikarmeistari 1971.

Mynd: timarit.is

Magnús Már Einarsson og Ólafur Ingi Skúlason, þjálfarar Aftureldingar og Breiðabliks.

Mynd: Mjólkurbikarinn

Afturelding gæti endurtekið afrek Víkings úr Reykjavík frá árinu 1971 og fylgt eftir sigri í næstefstu deild með því að vinna bikarkeppnina. Afturelding mætir Breiðabliki í bikarúrslitaleiknum á Laugardalsvellinum annað kvöld og þar kemur í ljóst hvort liðanna fylgir Víkingi, KR og Fram í Evrópukeppni næsta sumar.

TENGT EFNI
Magnús Már: Segir sig sjálft á hverjum pressan er
„Það hefur gerst einu sinni að lið úr næstefstu deild hefur unnið bikarinn, það var 1971 (Víkingur). Átján árum áður en ég fæddist. Það segir sig sjálft á hverjum pressan er fyrir þennan leik," sagði Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, í viðtali í gær.
Á söguvef Víkings er þessi sögulegi bikarmeistaratitill frá 1971 rifjaður upp en sama ár vann Víkingur B-deildina með yfirburðum.
Á leið sinni í úrslitaleikinn unnu Víkingar meðal annars Akureyringa og Akurnesinga og eftir 2-0 sigur gegn ÍA í undanúrslitum bikarkeppninnar sagði m.a. í Morgunblaðinu um Víkinga: „Þessi frammistaða þeirra er engin tilviljun. Liðið æfir að sögn vel og er skipað ungum og jöfnum leikmönnum og það sem meira er; þeir nenna að berjast og gefa aldrei eftir.“
Í úrslitaleiknum vann Víkingur einmitt sigur á Breiðabliki, 1-0, og skoraði Jón Ólafsson markið með þrumuskalla. Í Morgunblaðinu sagði að markið hefði verið „stórkostlega fallegt“ og í Vísi sagði Hallur Símonarson að þetta hefði verið „eitthvert fallegasta skallamark“ sem hann hefði séð.
Leikur Aftureldingar og Breiðabliks verður klukkan 19:00 annað kvöld á Laugardalsvelli.

Heimild: Söguvefur Víkings