Óskar dreymir um Liverpool - „Ég er alltaf glaður"


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valdimar í leik með Fylki árið 2020

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óskar Borgþórsson var seldur frá Fylki til Sogndal í Noregi á dögunum. Þessi tvítugi leikmaður skoraði fimm mörk og lagði upp fjögur í 17 leikjum í Bestu deildinni. Hann leikur sem vængmaður og getur einnig spilað á miðri miðjunni.
Norska félagið kynnti hann til leiks í dag og birti viðtal við leikmanninn á heimasíðu sinni.
„Mitt uppáhalds augnablik á fótboltavellinum var þegar ég skoraði mitt fyrsta mark fyrir Fylki, það var stórt. Ég var mjög ánægður og þakklátur að hafa verið valinn í U21 árs landsliðið og það hefur gengið vel hingað til. Ég er klár í að gefa allt mitt til Sogndal og reyna að vinna alla leiki," sagði Óskar.
„Mér finnst skotkeppnir skemmtilegastar á æfingum. Mín sterkasta hlið innan sem og utan vallar er að ég er alltaf glaður og já, ég er góður með boltann."
Jónatan Ingi Jónsson og Valdimar Þór Ingimundarson eru á mála hjá Sogndal. Valdimar er uppalinn hjá Fylki.
„Í fyrsta sinn sem ég heyrði af Sogndal var þegar Valdi kom hingað, ég ræddi við hann áður en ég ákvað að koma. Hann sagði að hann hafi bætt sig mikið hérna og þetta væri gott félag til að þróast hjá," sagði Óskar sem dreymir um að spila með Liverpool.
„Mig dreymir um Liverpool, það er markmið sem ég mun vinna markvisst að," sagði Óskar.
Sogndal er í 3. sæti næst efstu deildarinnar í Noregi, tveimur stigum á eftir toppliði Fredrikstad. Næsti leikur liðsins er heimaleikur gegn Kristiansund á miðvikudaginn. Brynjólfur Willumsson er leikmaður Kristiansund.

Valdimar í leik með Fylki árið 2020

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson




