Tékkar mæta Skotum með varalið í Þjóðadeildinni í kvöld en einungis tveir leikmenn í 24 manna hópi liðsins eiga landsleik að baki.
Starfsmaður tékkneska landsliðsins greindist með kórónaveiruna á dögunum og allir leikmenn liðsins sem spiluðu gegn Slóvökum duttu því út úr hópnum gegn Skotum.
Starfsmaður tékkneska landsliðsins greindist með kórónaveiruna á dögunum og allir leikmenn liðsins sem spiluðu gegn Slóvökum duttu því út úr hópnum gegn Skotum.
Tékkar vildu fyrst fresta leiknum en nú er ljóst að hann fer fram.
Roman Hubnik, 36 ára varanrmaður, og Stanislav Tecl, 30 ára framherji, eru einu mennirnir í hópi Tékka í kvöld sem eiga landsleik að baki.
Aðrir leikmenn eru að fara að spila sinn fyrsta landsleik í kvöld.
Athugasemdir