Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 07. september 2020 09:34
Magnús Már Einarsson
Mahrez og Laporte með kórónaveiruna
Aymeric Laporte
Aymeric Laporte
Mynd: Getty Images
Riyad Mahrez og Aymeric Laporte, leikmenn Manchester City, hafa báðir greinst með kórónaveiruna.

Leikmennirnir eru einkennalausir en þeir reyndust með veiruna þegar þeir fóru í skoðun um helgina.

Leikmennirnir eru því báðir farnir í einangrun.

Enska úrvalsdeildin hefst á laugardaginn en Manchester City situr hjá í fyrstu umferð þar sem liðið spilaði í Meistaradeildinni í ágúst.

Manchester City mætir Wolves í fyrsta leik sínum í deildinni þann 21. september.
Athugasemdir
banner