Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 07. september 2020 22:19
Ívan Guðjón Baldursson
Mbappe með Covid-19 - Navas, Marquinhos og Icardi einnig sýktir
Mynd: Getty Images
Kylian Mbappe hefur verið greindur með kórónaveiruna og verður því ekki með franska landsliðinu gegn Króatíu annað kvöld.

Mbappe var í byrjunarliði Frakka og gerði sigurmarkið í afar tæpum sigri í Svíþjóð á laugardaginn. Hann verður þó ekki með í næsta leik vegna Covid-19.

Leikmenn Frakklandsmeistara Paris Saint-Germain virðast einstaklega óheppnir með kórónuveiruna en fyrr í september voru Neymar, Mauro Icardi, Angel Di Maria, Leandro Paredes, Keylor Navas og Marquinhos greindir með veiruna.

Mbappe er einkennalaus í bili en hann tók prófið í morgun, um 36 tímum eftir sigurinn gegn Svíum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner