Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 07. september 2022 21:50
Aksentije Milisic
Klopp: Ég get ekki svarað því núna afhverju þetta gerðist
Mynd: EPA

„Það er mjög erfitt að kyngja þessu. Það er ekki erfitt að útskýra þetta, hvað fór úrskeiðis, ef þú sást leikinn. Að byrja með að fá á sig tvö víti...en Napoli spilaði fyrst og fremst frábæran leik, ekki við," sagði Jurgen Klopp eftir tapið slæma gegn Napoli í kvöld.


Napoli valtaði yfir Liverpool liðið í fyrri hálfleiknum og var staðan 3-0 í hálfleik. Miðað við færin þá gat forusta verið meiri. Napoli skoraði fjórða markið strax í byrjun síðari hálfleik áður en Liverpool minnkaði muninn.

„Við gefum þeim næstu mörkin sem komu eftir vítaspyrnuna. Við áttum að verjast miklu betur, 3-0 undir og við erum ekkert með í leiknum. Það var alltof mikið bil á milli leikmanna og við fundum enganveginn taktinn."

„Ég get ekki svarað því núna afhverju þetta gerðist. Gefðu mér smá tíma til að hugsa um þetta en það er mjög erfitt að kyngja þessu. En við verðum að halda áfram. Við spiluðum illa í fyrri hálfleikum en venjulega fáum við ekki á okkur þrjú mörk," 
 sagði Klopp.

Slæm byrjun á Meistaradeildinni hjá Liverpool en liðið mun mæta Wolves í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi.


Athugasemdir
banner
banner