Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 07. nóvember 2019 14:34
Magnús Már Einarsson
Andre Gomes gæti spilað aftur á tímabilinu
Mynd: Getty Images
Ekki er útilokað að portúgalski miðjumaðurinn Andre Gomes nái að snúa aftur á völlinn með Everton áður en tímabilinu lýkur.

Gomes fótbrotnaði á skelfilegan hátt í 1-1 jafntefli gegn Tottenham um síðustu helgi.

Gomes fór í aðgerð í vikunni en hún gekk frábærlega og leikmaðurinn gæti náð að spila meira á þessu tímabili.

„Það er ekki auðvelt fyrir okkur að gefa út dagsetningu á því hvenær Andre Gomes snýr aftur," sagði Marco Silva, stjóri Everton.

„Það er mögulegt að við sjáum hann spila aftur á þessu tímabili."
Athugasemdir
banner
banner