Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir hefur gengið til liðs við Stjörnuna en hún kemur til félagsins frá ÍBV.
„Hún er dugleg fram úr hófi og getur jafnt spilað sem miðju- og varnarmaður. Ingibjörg, vertu velkomin!" segir á Facebook síðu Stjörnunnar.
Hin 21 árs gamla Ingibjörg er alin upp hjá Sindra á Höfn í Hornafirði og lék með þeim 54 leiki í meistaraflokki áður en hún fór til ÍBV.
Undanfarin þrjú ár hefur Ingibjörg spilað samtals 51 leik með ÍBV í Pepsi Max-deildinni.
Ingibjörg Lucia var í liði ÍBV sem varð Bikarmeistari 2017 og á baki 9 landsleiki með yngri landsliðum Íslands.
Athugasemdir