Scott McTominay, miðjumaður Manchester United, haltraði af velli í sigrinum á Partizan í Evrópudeildinni í kvöld.
McTominay hefur stigið upp og verið einn mikilvægasti leikmaður United á tímabilinu.
Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, vonast til þess að skoski miðjumaðurinn verði klár í slaginn gegn Brighton á sunnudaginn.
„Hann sagði að það yrði allt í lagi með sig, en ég veit það ekki. Vonandi verður hann klár á sunnudaginn," sagði Solskjær við BT Sport.
„Við viljum vinna riðilinn en okkur hlakkar ekki til ferðalagsins til Astana þar sem við eigum að mæta Aston Villa, Spurs og Man City þar á eftir. Kannski hvílum við leikmenn gegn Astana."
Athugasemdir