mán 07. nóvember 2022 09:58
Elvar Geir Magnússon
Thiago faðmaði Eið Smára - Kom inn fyrir Íslendinginn hjá Barcelona
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Thiago, leikmaður Liverpool, var gestur í Vellinum á Síminn Sport í gærkvöldi en þátturinn var í beinni útsendingu frá Tottenham Hotspur-vellinum þar sem Liverpool vann 2-1 sigur á heimamönnum.

Eiður Smári Guðjohnsen var í teymi Símans á vellinum og gekk Thiago beint að Eiði áður en hann mætti í viðtalið og faðmaði hann.

Þess má geta að Thiago lék sinn fyrsta leik fyrir Barcelona í maí 2009, þegar hann var 18 ára gamall. Þá kom hann inn af bekknum fyrir einmitt Eið Smára í leik gegn Mallorca

Hér má sjá spjall Thiago við Símann Sport:


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner