Fotbolti.net
07.12.24 - 14:17
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Bose mótið: Víkingur fór illa með FH

Úr leiknum í dag. Tarik skoraði fjórða markið.

Úr leiknum í dag. Tarik skoraði fjórða markið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH 1-5 Víkingur
1-0 Jón Guðni Fjóluson (sjálfsmark)
1-1 Valdimar Þór Ingimundarson
2-1 Valdimar Þór Ingimundarson
3-1 Erlingur Agnarsson
4-1 Tarik Ibrahimagic
5-1 Daði Berg Jónsson

Víkingur nældi í sinn fyrsta sigur í Bose mótinu en liðið lagði FH af velli í dag.

FHingar komust yfir en það var Jón Guðni Fjóluson sem varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark.

Víkingar svöruðu því ansi vel Valdimar Þór Ingimundarson skoraði tvennu og Erlingur Agnarsson, Tarik Ibrahimagic og Daði Berg Jónsson skoruðu sitt markið hvor.

Öruggur sigur Víkinga staðreynd. Liðið gerði jafntefli gegn HK í fyrsta leik sínum en þetta var fyrsti leikur FH í mótinu. Næsti leikur FH er gegn HK í Kórnum 19. desember. Víkingur spilar næst á fimmtudaginn í Sambandsdeildinni gegn Djurgarden á Kópavogsvelli.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.