Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 08. febrúar 2023 23:20
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Man Utd og Leeds: Martinez maður leiksins
Mynd: Manchester United

Sky Sports hefur gefið leikmönnum einkunnir eftir 2-2 jafntefli Manchester United gegn Leeds United á Old Trafford.


Lisandro Martinez er valinn sem maður leiksins og fær hann 8 í einkunn, sem er sama einkunn og Marcus Rashford og Jadon Sancho fá fyrir sína þátttöku.

Martinez var gríðarlega flottur í hjarta varnarinnar en hefði mögulega átt að vera farinn útaf með rautt spjald. Stuðningsmenn Leeds voru í það minnsta bálreiðir þegar hann slapp við spjald eftir samskipti sín við Patrick Bamford

Bestu leikmenn Leeds voru Luke Ayling og Wilfried Gnonto með 8 í einkunn. Markvörðurin Illan Meslier fær einnig 8 fyrir sinn þátt enda varði hann oft vel, þó hann hafi líklega átt að verja slakt skot frá Jadon Sancho sem reyndist jöfnunarmark leiksins.

Wout Weghorst og Raphael Varane fá lægstu einkunnirnar frá Sky ásamt Pascal Struijk úr liði Leeds. Þeir fá allir 5 fyrir sinn þátt.

Man Utd: De Gea (6), Dalot (6), Varane (5), Martinez (8), Shaw (7); Fred (6), Sabitzer (6), Fernandes (7); Rashford (8), Weghorst (5), Garnacho (6).
Varamenn: Sancho (8), Pellistri (6),

Leeds: Meslier (8); Ayling (8), Koch (6), Wober (7), Struijk (5); Adams (6), McKennie (6); Summerville (7), Harrison (7), Gnonto (8); Bamford (7).
Varamenn: Firpo (6), Aaronson (6), Rutter (6).


Athugasemdir
banner
banner