Fotbolti.net
08.03.23 - 19:20
Ívan Guðjón Baldursson

KF fær marokkóskan framherja (Staðfest)

KF fær marokkóskan framherja (Staðfest)
Canon

Mynd: KF

KF er búið að klófesta nýjan leikmann fyrir átök komandi tímabils í 2. deildinni.

Sá heitir Adil Kouskous og er ættaður frá Marokkó en með þýskt ríkisfang.

Adil er fæddur 1992 og hefur komið víða við en á undanförnum árum hefur hann meðal annars reynt fyrir sér í Austurríki, Bandaríkjunum, Óman og Bangladess.

KF náði í 26 stig á síðustu leiktíð 2. deild og stefnir hærra í sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.